10 Janúar 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Grafarholti í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 70 kannabisplöntur, þar af margar á lokastigi ræktunar. Jafnframt var lagt hald á ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Kona á fertugsaldri var handtekin í þágu rannsóknar málsins. Hún hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Kannabisplönturnar sem voru haldlagðar í Grafarholti í gær.