31 Mars 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Grafarvogi. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 20 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Húsráðendur, tveir karlar á þrítugsaldri, voru yfirheyrðir á vettvangi og játuðu þeir aðild sína. Málið telst upplýst.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.