18 Apríl 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Grafarvogi í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 20 kannabisplöntur og ýmsan búnað sem tengdist starfseminni.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.