20 Desember 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúðarhúsi í Grafarvogi í vikunni. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á bæði kannabisplöntur og kannabisefni, en efnin voru í sölueiningum. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu. Þess má geta að þegar lögreglan kom á vettvang til húsleitar voru einnig kona og barn á heimilinu og var málið því tilkynnt til barnaverndaryfirvalda.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.