16 Desember 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Háaleiti í gærmorgun. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 160 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á 25 grömm af marijúana. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu. 

Í fyrradag var jafnframt stöðvuð kannabisræktun í íbúð í miðborginni eftir að lögreglumaður fann kannabislykt leggja frá ónefndu húsi. Það leiddi síðan til húsleitar en á áðurnefndum stað fundust 35 kannabisplöntur í fullum blóma og voru þær allar af stærri gerðinni. Íbúðin var mannlaus þegar lögreglan kom á vettvang en fyrir liggur hver stendur að baki ræktuninni.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.