14 Júlí 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Háaleitishverfinu í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 70 kannabisplöntur. Það voru lögreglumenn við eftirlit í hverfinu sem runnu á lyktina og því var eftirleikurinn auðveldur. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, játaði aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.