12 Júlí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Háaleitishverfi eftir hádegi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 50 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Húsráðandi, kona um fertugt, viðurkenndi aðild sína að málinu.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.