28 Október 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Háleitishverfinu síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 70 kannabisplöntur og voru þær á ýmsum stigum ræktunar. Húsið var mannlaust þegar lögreglan kom á vettvang en fyrir liggur hver stendur að baki ræktuninni.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.