10 Maí 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði í fyrrakvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á nokkra tugi kannabisplantna, auk búnaðar sem tengdist starfseminni. Í húsinu var einnig að finna 1,5 kg af marijúana sem var tilbúið til dreifingar og var það einnig tekið í vörslu lögreglu. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.