8 Febrúar 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði síðdegis á laugardag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 170 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, hefur játað aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.