1 Apríl 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í nótt. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 220 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Einnig var lagt hald á allmarga gróðurhúsalampa. Karl á fertugsaldri var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. 

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.