27 Mars 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 300 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Talið er að þarna hafi staðið yfir ræktun í einhvern tíma. Tveir karlar voru handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Sá eldri er um fertugt en hinn er nokkru yngri. Stór hluti hússins í Hafnarfirði, þar sem kannabisræktunin fannst, var undirlagður af þessari starfsemi.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.