25 Mars 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 600 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í tengslum við rannsókn málsins. 

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.