5 Maí 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 30 kannabisplöntur en á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Karl á fimmtugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.