21 Desember 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði á laugardagskvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 90 kannabisplöntur og var meirihluti þeirra á lokastigi ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.