2 Júlí 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi í fyrrinótt. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 150 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á liðlega 200 grömm af marijúana. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.