30 September 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi fyrr í vikunni. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 250 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á 2,5 kg af marijúana sem var þarna í þurrkun. Tveir karlar og ein kona, öll um þrítugt, voru yfirheyrð í tengslum við rannsókn málsins en annar mannanna játaði aðild sína að málinu sem telst upplýst.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.