27 Maí 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í Kópavogi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 30 kannabisplöntur og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var fjarstaddur þegar lögreglan kom á vettvang en við yfirheyrslur játaði hann aðild sína að málinu. Íbúðina hafði hann leigt í þeim eina tilgangi að rækta þar kannabis.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.