1 Júlí 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Kópavoginum í fyrradag. Við húsleit fundust 155 kannabisplöntur á misjöfnu stigi ræktunar og lítilræði af marijúana. Tveir karlar á fertugsaldri voru handteknir og yfirheyrðir vegna málsins. Þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.