5 September 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 50 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Karl um fimmtugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann aðild sína að málinu.