24 Maí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 25 kannabisplöntur. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, viðurkenndi aðild sína að málinu.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.