28 Nóvember 2012 12:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 50 kannabisplöntur. Karl á þrítugsaldri, húsráðandi á staðnum, var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann aðild sína að málinu. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.