29 Janúar 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi eftir hádegi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 15 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Húsráðandi, kona á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu. 

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.