11 Mars 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á tæplega 50 kannabisplöntur og nokkurt magn gróðurhúsalampa.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.