11 Maí 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 120 kannabisplöntur. Á sama stað var einnig var lagt hald á 70 kannabisfræ og eitthvað af marijúana. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, játaði aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.