5 Desember 2008 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í miðborginni eftir hádegi í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 20 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Karl um fertugt var handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Hann hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, m.a. vegna fíkniefnamála.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.