26 Janúar 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í miðborginni í nótt. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust nokkrir tugir kannabisplantna á ýmsum stigum ræktunar. Tildrög málsins voru þau að lögreglumenn sem voru við eftirlit í hverfinu runnu nánast á lyktina af kannabisplöntunum og því var eftirleikurinn auðveldur.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.