7 Apríl 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í miðborginni eftir hádegi í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 40 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Plönturnar, sem sumar hverjar voru tveggja metra háar, voru vel faldar í leyniherbergi sem búið var að koma fyrir í íbúðinni. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í tengslum við rannsókn málsins. Hann hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.