24 Nóvember 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 80 kannabisplöntur en helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á 300 grömm af marijúana. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu. Sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.