2 September 2008 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í lítilli íbúð í miðborginni í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 54 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Þar var einnig að finna tæki og tól til þesskonar framleiðslu en íbúðin var undirlögð af þessari starfsemi. Karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknar málsins og hefur hann játað sök. Efnin voru ætluð til sölu.

Kannabisplönturnar sem lögreglan haldlagði í gærkvöld.