11 Mars 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 40 kannabisplöntur. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.