30 Nóvember 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á rúmlega 150 kannabisplöntur. Þrír karlar, tveir á fertugsaldri og einn á fimmtugsaldri, voru handteknir og yfirheyrðir í þágu rannsóknarinnar. Þeir játuðu allir aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.