20 Nóvember 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Mosfellsbæ um helgina. Við húsleit á áðurnefndum stað fannst á annan tug kannabisplantna. Karl á fertugsaldri, húsráðandi á staðnum, var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.