6 Október 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við lögregluna á Suðurnesjum, stöðvaði kannabisræktun í húsi í Reykjanesbæ í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 20 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á sama stað fundust einnig sterar og voru þeir sömuleiðis teknir í vörslu lögreglu. Karl og kona, sem bæði eru á þrítugsaldri, voru yfirheyrð í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndu þau aðild sína að málinu, sem telst upplýst.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.