27 Janúar 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Við húsleit síðdegis í fjölbýlishúsi í miðborginni fundust um 25 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar auk lítilræðis af öðrum fíkniefnum. Tveir karlar á þrítugsaldri játuðu aðild sína. Þá fann lögreglan kannabisræktun á tveimur stöðum í Hafnarfirði í gærkvöld. Á öðrum var lagt hald á um 20 kannabisplöntur sem voru á lokastigi ræktunar. Tveir karlar og ein kona voru flutt á lögreglustöð og yfirheyrð í tengslum við rannsókn málsins. Á hinum staðnum í Hafnarfirði var um minna magn að ræða en þar var karl á þrítugsaldri handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.