29 Desember 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum í Reykjavík í gær. Við húsleit í íbúð í Breiðholti var lagt hald á rúmlega 200 kannabisplöntur. Á sama stað fannst einnig landi og bruggtæki og var það sömuleiðis tekið í vörslu lögreglunnar. Lögreglan framkvæmdi jafnframt húsleit í annarri íbúð í borginni í gær en í henni fundust um 30 kannabisplöntur. Þrír aðilar voru handteknir í tengslum við rannsókn málanna. Þeir hafa allir játað aðild sína og eru lausir úr haldi lögreglu.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.