16 Nóvember 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Reykjavík í byrjun vikunnar. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust á annan tug kannabisplantna, en ræktunin var staðsett í þvottaherbergi íbúðarinnar. Kona á miðjum aldri var yfirheyrð í þágu rannsóknarinnar.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.