30 Mars 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Úlfarsárdal um helgina. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 200 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Fjórir karlar hafa verið yfirheyrðir í tengslum við rannsókn málsins en talið er að það tengist kannabisræktun sem fannst í Hafnarfirði á föstudag. Þá fundust um 300 kannabisplöntur og voru þær sömuleiðis á lokastigi ræktunar. Á báðum stöðum var stórt rými undirlagt af þessari starfsemi.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.