8 Maí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 115 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Geymslurými í kjallara hússins hafði verið innréttað og útbúið til ræktunarinnar. Karl á fertugsaldri, íbúi í húsinu, var yfirheyrður á vettvangi og játaði hann aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.