27 Janúar 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur fyrr í vikunni. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 100 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á tæplega 250 grömm af kannabisefnum. Karl á fertugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.