14 Október 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Vogahverfinu í Reykjavík í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á rúmlega 50 kannabisplöntur og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Enginn býr í íbúðinni, sem var undirlögð af kannabisræktun. Einn var handtekinn í þágu rannsóknarinnar en málið telst upplýst.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.