7 Janúar 2008 12:00

Tveir karlar, 18 og 22 ára, voru sviptir ökuréttindum til bráðabrigða aðfaranótt laugardags en þeir voru staðnir að hraðakstri á Laugavegi á móts við Bolholt. Bílar þeirra mældust á 115 km hraða og þykir víst að mennirnir hafi verið að reyna með sér í kappakstri en á þessum kafla er leyfður hámarkshraði 50. Ökufantarnir hafa áður verið teknir fyrir hraðakstur en þó ekkert í líkingu við þetta.

Fleiri voru að flýta sér í umferðinni um helgina en þrjátíu aðrir ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur víðsvegar í umdæminu. Þá stöðvaði lögreglan tvo pilta á mótorhjólum en báðir voru próflausir og hjólin reyndust óskráð.