24 Ágúst 2011 12:00

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á ljósastaur í Breiðholti í gærkvöld. Slysið varð um áttaleytið en þá voru tveir ökumenn, 18 og 19 ára, í kappakstri í Arnarbakka. Annar þeirra missti stjórn á bílnum með fyrrgreindum afleiðingum en innanborðs voru þrír farþegar sem allir fóru á slysadeild, eins og áður sagði, en meiðsli þeirra eru ekki alvarleg eftir því sem best er vitað. Í hinum bílnum voru einnig fjórir að ökumanninum meðtöldum en farþegarnir sex eru á aldrinum 15-18 ára. Mikil mildi þykir að ekki fór verr en ljóst er að ökumennirnir stofnuðu lífi og heilsu allra í augljósan háska.