20 Júní 2011 12:00

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. júlí næstkomandi að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var handtekinn við komuna til landsins þann 13. júní síðastliðinn með fjögur kíló af amfetamíni í fórum sínum.  Rannsókn málsins er á frumstigi og getur lögregla ekki veitt frekari upplýsingar að sinni.