6 Nóvember 2018 09:44

Karlmaður fæddur 1959 var í morgun úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Suðurlands til fimmtudagsins 8. nóvember kl. 18:00 vegna rannsóknar á líkamsárás sem átti sér stað í heimahúsi í Þorlákshöfn s.l. sunnudag.   Maðurinn er talinn hafa veitt konu á fimmtugsaldri stunguáverka á kvið með hnífi.   Konan var flutt af vettvangi á sjúkrahús, með sjúkrabifreið, þar sem hún dvelur enn en er ekki talin í lífshættu.   Báðir aðilar eru af erlendu bergi brotnir en hafa verið búsettir hér og unnið um lengri tíma.   Frekari upplýsingar um málið er ekki unnt að veita að sinni.