19 Desember 2020 14:45

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á um hálft kíló af kókaíni í síðustu viku, en það hafði verið sent til landsins með hraðsendingarþjónustu. Einn var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, auk þess sem húsleit var framkvæmd í umdæminu. Rannsókn málsins hefur miðað vel og er hún á lokastigi. Ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir hinum handtekna.