30 Maí 2018 12:19

Kona sem flutt var slösuð á sjúkrahús í Reykjavík í gær vegna höfuðáverka sem hún hlaut eftir að hún féll á göngustíg sem liggur frá bílastæðinu við Reynisfjöru niður í fjöruna er látin. Hún var erlendur ferðamaður, fædd 1938, á ferð um Ísland með fjölskyldu sinni.

Tilkynning barst neyðarlínu um kl. 14:30 í gær og voru viðbragðsaðilar á Suðurlandi þegar kallaðir til.  Konan var flutt til móts við þyrlu LHG með sjúkrabifreið og svo áfram með þyrlunni til Reykjavíkur.