29 Desember 2019 16:52

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karlmanni á sextugsaldri vegna rannsóknar á meintri frelsiskerðingu, líkamsárás og kynferðisbrotum gegn þremur konum á þrítugs- og fertugsaldri. Gæsluvarðhaldskrafan er á grundvelli rannsóknarhagsmuna og til að varna því að sakborningur haldi áfram brotum meðan málum hans er ekki lokið, en ætluð brot voru framin með skömmu millibili. Dómari hefur tekið sér frest til að taka afstöðu til kröfu lögreglu, en niðurstöðu er að vænta um hádegi á morgun.  

Komið hefur fram gagnrýni á störf lögreglu undanfarna daga vegna ýmissa atriða, m.a. að ekki hafi verið gripið til tækra ráðstafana til að bjarga brotaþola. Upptökur af vettvangi hafa verið tryggðar og yfirfarnar en ekkert aðfinnsluvert hefur komið í ljós. Öll gögn og upptökur verða sendar til nefndar um eftirlit með lögreglu í þeim tilgangi að yfirfara vinnubrögð lögreglu í málinu.