18 Október 2019 19:39

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi þriggja vikna gæsluvarðhald, eða til 8. nóvember, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á ætluðu kynferðisbroti, líkamsárás og heimilisofbeldi. Maðurinn var handtekinn fyrr í mánuðinum eftir að tilkynning barst um málið, en lögreglan fór þá á vettvang í húsnæði í vesturhluta borgarinnar og hitti þar fyrir brotaþola, sem var fluttur á slysadeild. Maðurinn var þá hvergi sjáanlegur, en hann fannst svo eftir leit í íbúð í öðru hverfi borgarinnar.

Rannsókn málsins hefur miðað vel og er langt komin.