14 Október 2019 17:05

Karlmaður á fertugsaldri var á laugardag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald, eða til 18. október, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á ætluðu kynferðisbroti. Maðurinn var handtekinn í heimahúsi í umdæminu um helgina eftir að tilkynning barst um málið.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.